Keppnisfyrirkomulag
Mótið er haldið í útsláttarfyrirkomulagi (single elimination). Í hverjum þyngdarflokki verður einungis krýndur einn sigurvegari, sem hlýtur titilinn armglímumeistari síns þyngdarflokks á Íslandi.
Sigurvegari í sínum þyngdarflokki getur kosið að keppa í næsta efri þyngdarflokki. Viðkomandi keppandi gengur þá inn í keppnina þegar þrír keppendur eru eftir, það er einum bardaga frá úrslitum.
Þyngdarflokkar
- Léttvigt: allt að 70 kg
- Miðvigt: 70 kg+ upp að 80 kg
- Létt þungavigt: 80 kg+ upp að 90 kg
- Þungavigt: 90 kg+ upp að 100 kg
- Ofurþungavigt: 100 kg+